1. gr.
Á eftir 1. gr. bætist við ný grein, 1. gr. a, sem orðast svo:
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/94 frá 8. febrúar 1994 skal eftirtalin EB-gerð öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af bókun 21(um framkvæmd samkeppnisreglna sem gilda um fyrirtæki), bókun 1 (um altæka aðlögun) og öðrum ákvæðum samningsins:
- reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2410/92 frá 23. júlí 1992 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3975/87 sem setur reglur um beitingu samkeppnisreglna gagnvart fyrirtækjum á sviði flutninga í lofti.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 48. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993, öðlast þegar gildi.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin, sem fela í sér breytingu á bókun 21 við EES-samninginn og snerta framkvæmd 53.-54. gr. hans, eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 1, 30.3.1994, bls. 5 (ákvörðunin), og nr. 34, 15.9.1994, bls. 1 (EB-gerðin).
Viðskiptaráðuneytinu, 14. júní 1996.
Finnur Ingólfsson.
Jón Ögmundur Þormóðsson.