1. gr.
Á eftir 1. gr. b bætist við ný grein, 1. gr. c, sem orðast svo:
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/98 frá 27. mars 1998 skal eftirtalin EB-gerð öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af bókun 21 um framkvæmd samkeppnisreglna sem gilda um fyrirtæki, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
- reglugerð ráðsins (EB) nr. 1310/97 frá 30. júní 1997 um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 4064/89 um eftirlit með samfylkingum fyrirtækja.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 48. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993, öðlast þegar gildi.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin, sem fela í sér breytingu á bókun 21 með EES-samningnum, sbr. reglugerð nr. 230/1997, eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB.
Viðskiptaráðuneytinu, 11. júní 1998.
Finnur Ingólfsson.
Jón Ögmundur Þormóðsson.