REGLUGERÐ
um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl.
I. KAFLI
Gjöld fyrir einkaleyfi.
1. gr.
Fyrir umsóknir og meðhöndlun þeirra skal, auk árgjalda skv. 2. gr., greiða eftirtalin gjöld:
|
|
|
Kr. |
1) |
|
Umsóknargjald skv. 5. mgr. 8. gr. einkaleyfalaga (ell.) nr. 17/1991 fyrir einkaleyfisumsókn: |
|
|
a) |
grunngjald |
28.700 |
|
b) |
viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu umfram tíu |
1.330 |
2) |
|
Grunngjald fyrir alþjóðlega einkaleyfisumsókn skv. 1. mgr. 31. gr. eða 2. mgr. 38. gr. (ell.) |
28.700 |
3) |
|
Umsóknargjald skv. 5. mgr. 8. gr. ell. fyrir alþjóðlega umsókn, sem yfirfærð er skv. 31. gr. laganna, eða fyrir einkaleyfisumsókn sem lögð er inn í samræmi við 38. gr. ell.: |
|
|
a) |
grunngjald telst greitt hafi gjald skv. 2. tl. verið greitt, |
|
|
b) |
viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu umfram tíu |
1.330 |
4) |
|
Gjald skv. 36. og 37. gr. ell. |
35.000 |
5) |
|
Viðbótargjald vegna viðbótarfrests til að leggja inn tilskilda þýðingu vegna yfirfærðrar umsóknar skv. 3. mgr. 31. gr. ell. |
10.250 |
6) |
|
Endurupptökugjald skv. 3. mgr. 15. gr. eða 3. mgr. 19. gr. ell. |
5.150 |
|
|
ef umsókn hefur áður verið endurupptekin |
10.250 |
7) |
|
Útgáfugjald skv. 1. mgr. 19. gr. ell.: |
|
|
a) |
grunngjald fyrir fyrstu 40 blaðsíður lýsingar með tilheyrandi einkaleyfiskröfum, teikningum og ágripi |
12.000 |
|
b) |
viðbótargjald fyrir hverja blaðsíðu sem byrjar umfram 40 |
600 |
|
c) |
viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu sem bætt er við þær sem greitt var fyrir við innlagningu umsóknar |
1.330 |
8) |
|
Rannsóknargjald fyrir umsókn sem lögð var inn fyrir 1. janúar 1992 og send verður í nýnæmisrannsókn skv. viðauka I í auglýsingu nr. 575/1991 um reglur varðandi einkaleyfisumsóknir (augl. ell.) |
25.000 |
9) |
|
Viðbótargjald fyrir umsókn sem berst með símbréfi eða hliðstæðum sam skiptabúnaði |
550 |
Gjöld skv. 2.-4. tl. 1. mgr. skulu greidd innan 20 mánaða frá alþjóðlegum umsóknardegi eða, sé forgangsréttar krafist, frá forgangsréttardegi. Ef umsækjandi hefur óskað eftir að gerð verði alþjóðleg forathugun á einkaleyfishæfi lengist áðurnefndur frestur í 30 mánuði. Hafi viðbótargjald skv. 3. tl. b) ekki verið greitt innan áðurnefndra fresta gefst kostur á að greiða það innan venjulegs frests sem veittur er vegna ágalla.
Gjald skv. 5. tl. 1. mgr. skal greitt innan 2ja mánaða frá því að frestum skv. 2. mgr. lýkur.
Þegar umsækjanda er tilkynnt um að unnt sé að veita einkaleyfi, sbr. 1. mgr. 19. gr. ell. skal jafnframt geta um upphæð útgáfugjalds. Fjöldi síðna skv. 7. tl. 1. mgr. miðast við þá lýsingu ásamt einkaleyfiskröfum, teikningum og ágripi sem fyrir liggur þegar tilkynningin er send.
2. gr.
Árgjöld fyrir einkaleyfisumsóknir og einkaleyfi skv. 5. mgr. 8. gr., 40.-42.
og 82. gr. ell., eru sem hér segir:
Árgjald fellur í gjalddaga síðasta dag fyrsta almanaksmánaðar í gjaldári sem miðast við umsóknardag skv. 5. mgr. 8. gr. og skv. 1. ml. 1. mgr. 41. gr. ell. Heimilt er að greiða árgjald allt að þremur mánuðum fyrir gjalddaga.
Árgjald, sem greitt er innan 6 mánaða frá gjalddaga skv. 3. mgr. 41. gr. eða 3. mgr. 42. gr. ell. skal hækka um 20%. Ef árgjald fyrir umsókn eða einkaleyfi er ekki greitt innan þessa frests verður viðkomandi umsókn afskrifuð eða viðkomandi einkaleyfi fellt úr gildi, sbr. 4. mgr. 15. gr. og 51. gr. ell.
3. gr. a
Gjöld fyrir einkaleyfi sem veitt eru í samræmi við eldri lög, skv. 76. gr. ell., á grundvelli umsókna sem lagðar hafa verið inn fyrir 1. janúar 1992, sbr. 78. gr. ell., skulu (í samræmi við gjaldafyrirkomulag sem tekur mið af hámarksgildistíma leyfis) vera sem hér segir:
a) Fyrir einkaleyfi sem getur náð allt að 15 ára gildistíma talið frá útgáfudegi:
1) fyrir 1.- 5. ár gildistímans 22.000
2) fyrir 6.- 10. ár gildistímans 52.000
3) fyrir 11.- 15. ár gildistímans 96.000
b) Fyrir einkaleyfi sem getur náð allt að 20 ára gildistíma talið frá umsóknardegi greiðast árgjöld skv. 2. gr. Númer gjaldára miðast við aldur viðkomandi umsóknar.
Við veitingu einkaleyfisins skal, innan 3ja vikna frá því að umsækjanda var tilkynnt um leyfisveitinguna, greiða gjald fyrir fyrstu fimm ár gildistímans frá útgáfudegi (eða því sem næst, sbr. skýringu aftan við þessa mgr.). Að öðrum kosti fellur einkaleyfið úr gildi skv. 51. gr. ell.
(Skýring varðandi útreikning á gjöldum skv. a- og b-lið 1. mgr.: Ef greiðsla árgjalda af umsókn hefur hafist skv. 2. mgr. 82. gr., sbr. 41. gr. ell., áður en einkaleyfi er veitt skal draga frá viðkomandi gjaldi þann hluta árgjalds yfirstandandi gjaldárs, sem skarast við gjald skv. a-lið 1. mgr. Umræddur hluti árgjalds skal reiknast eftir hlutfallinu: fjöldi eftirstandandi daga gjaldárs/365. Þegar gildistíminn miðast við 20 ár (b-liður 1. mgr. á við) skal greiða fyrir þau gjaldár til viðbótar yfirstandandi gjaldári þannig að greiðslutímabilið verði sem næst 5 ár talið frá útgáfudegi einkaleyfisins.)
Gjalddagi vegna 2. og 3. gildistímabils, sbr. a-lið 1. mgr., er sá almanaksdagur í upphafi hvors tímabils sem svarar til útgáfudags einkaleyfisins. Gjalddagi síðari árgjalda sbr. b-lið 1. mgr., er síðasti dagur fyrsta almanaksmánaðar í gjaldári. Frestur til að greiða þessi gjöld er 6 mánuðir og sé hann nýttur hækka gjöldin um 20%. Einnig er heimilt að greiða þessi gjöld allt að þremur mánuðum fyrir gjalddaga.
3. gr. b
Upphæð árgjalds, sem gjaldfellur í fyrsta sinn, af einkaleyfi sem veitt hefur verið eftir 1. janúar 1982 í samræmi við eldri lög og gilt getur í allt að 20 ár talið frá umsóknardegi, er skv. 2. gr. og miðast gjaldár við aldur viðkomandi umsóknar. Ennfremur skal upphæðin, ef við á, reiknast sem hlutfall af viðkomandi árgjaldi eftir hlutfallinu: fjöldi eftirstandandi daga gjaldárs/365. Gjalddagi er sá almanaksdagur sem samsvarar útgáfudegi einkaleyfisins við lok gildistímabils sem er að ljúka. Eftir það greiðast árgjöld skv. 2. gr. fyrir eitt ár í senn.
Gjöld fyrir þau einkaleyfi, sem um getur í 1. mgr., og gilt geta í 15 ár talið frá útgáfudegi leyfis eru skv. a-lið 1. mgr. 3. gr. a. Gjalddagi er skv. 3. mgr. sömu greinar.
4. gr.
Ýmis gjöld vegna umsókna og veittra einkaleyfa:
1) |
Beiðni um innritun í einkaleyfadagbók eða einkaleyfaskrá, s.s. varðandieiganda, aðilaskipti (framsal), uppfinningamann og nytjaleyfi, sbr. 9. og 48. gr. rg. ell. |
1.600 |
2) |
Afrit af almennt aðgengilegri einkaleyfisumsókn (lýsing, einkaleyfiskröfur, ágrip og teikningar) eða af veittu einkaleyfi |
550 |
3) |
Afrit af eintökum skv. 1. mgr. 25. gr. rg. ell. eða af einkaleyfi eða framlagningarskjali, allt að |
550 |
4) |
Staðfest afrit af skjölum skv. 2. og 3. tl., m.a. forgangsréttarskjöl |
2.260 |
5) |
Staðfest útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr einkaleyfaskrá |
1.200 |
6) |
Skyndikönnun á því hvort umsókn eða einkaleyfi sé skráð í nafni ákveðins eiganda eða uppfinningamanns eða fyrir uppfinningu í tilteknum alþjóðlegum tækniflokki (að öðrum kosti skv. tímagjaldi) |
0 |
7) |
Beiðni um endurbirtingu umsóknar eða einkaleyfis |
1.500 |
8) |
Endurveitingargjald skv. 72. gr. ell. |
12.850 |
II. KAFLI
Gjöld fyrir vörumerki.
5. gr.
Fyrir umsókn um skráningu vörumerkis greiðist:
a) |
Grunngjald, einn vöruflokkur innifalinn |
11.300 |
b) |
Flokkagjald fyrir hvern vöruflokk umfram einn |
2.500 |
c) |
Ef sótt er um skráningu á myndmerki eða stílfærðu orðmerki greiðist að auki |
1.300 |
6. gr.
Fyrir umsókn um endurnýjun vörumerkis greiðist:
a) |
Grunngjald, einn vöruflokkur innifalinn |
11.300 |
b) |
Flokkagjald fyrir hvern vöruflokk umfram einn |
2.500 |
7. gr.
Fyrir umsókn um skráningu gæðamerkis og endurnýjun greiðist:
a) |
Grunngjald, einn vöruflokkur innifalinn |
14.400 |
b) |
Flokkagjald fyrir hvern vöruflokk umfram einn |
2.500 |
8. gr.
Ýmis gjöld vegna vörumerkja:
a) |
Beiðni um breytingu á skráðu merki, sbr. 24. gr. vörumerkjalaga og 9. gr. reglugerðar nr. 1/1969 |
2.000 |
|
- fylgi beiðnin umsókn um endurnýjun |
1.000 |
b) |
Beiðni um innritun nýs eiganda (framsals) í vörumerkjaskrá |
1.600 |
|
- fylgi beiðnin umsókn um endurnýjun eða beiðni skv. a-lið |
0 |
c) |
Beiðni um innritun nytjaleyfis |
1.600 |
d) |
Beiðni um endurbirtingu umsóknar eða skráningar |
1.500 |
e) |
Staðfest útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr vörumerkjaskrá |
1.200 |
f) |
Útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr vörumerkjaskrá |
550 |
g) |
Skyndikönnun á því hvort tiltekið vörumerki sé að finna í vörumerkjaskrá (allt að tvö tilvik í senn) |
0 |
h) |
Athugun og mat á því hvort tiltekið vörumerki telst það líkt skráðu vörumerki eða merki sem sótt hefur verið um skráningu á að ruglingshætta yrði hugsanlega talin vera fyrir hendi ef umsókn yrði lögð inn |
2.300 |
III. KAFLI
Gjöld fyrir hönnunarvernd.
9. gr.
Fyrir umsókn um skráningu á hönnunarvernd greiðist:
a) |
Grunngjald, birting einnar myndar innifalin |
7.700 |
b) |
Fyrir hverja hönnun umfram eina í umsókn um samskráningu |
3.000 |
c) |
Fyrir birtingu hverrar myndar umfram eina |
2.000 |
10. gr.
Fyrir rannsókn skv. 18. gr. laganna:
a) |
Ef krafist er rannsóknar á því hvort tiltekin hönnun sé eins eða svipuð hönnun sem skráð er hér á landi eða sótt hefur verið um skráningu á, sbr. 1. mgr. |
4.300 |
b) |
Ef krafa um rannsókn kemur fram við innlagningu umsóknar sbr.. 2. mgr. |
2.700 |
11. gr.
Gjöld fyrir endurnýjun skv. 24. gr. laganna:
a) |
Fyrsta endurnýjunartímabil |
9.000 |
b) |
Viðbótargjald á fyrsta endurnýjunartímabili fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu |
3.000 |
c) |
Síðari endurnýjunartímabil |
12.000 |
d) |
Viðbótargjald á síðari endurnýjunartímabilum fyrir hverja hönnun í samskráningu |
5.000 |
12. gr.
|
Gjald vegna kröfu um ógildingu skráningar |
6.000 |
13. gr.
Ýmis gjöld vegna hönnunar:
a) |
Beiðni um innritun nýs eiganda (framsals) eða nytjaleyfis í hönnunarskrá |
1.600 |
b) |
Útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr hönnunarskrá |
550 |
c) |
Staðfest útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr hönnunarskrá |
1.200 |
IV. KAFLI
Gjöld vegna áfrýjunar.
14. gr.
|
Hámarksgjald vegna áfrýjunar, sbr. 1. mgr. 25. gr. og 2. mgr. 67. gr. laga nr. 17/1991, lög nr. 31/1984 og 30. gr. laga nr. 48/1993 Áfrýjunargjald greiðist iðnaðarráðuneyti við afhendingu bréfs um áfrýjun. |
80.000 |
V. KAFLI
Gjöld fyrir þjónustuverkefni.
15. gr.
Fyrir þjónustu sem ekki verður heimfærð undir einingarverð reglugerðarinnar, s.s. umfangsmeiri leit, athuganir, úrvinnslu eða tölvuútskriftir á grundvelli upplýsinga í einkaleyfaskrá, vörumerkjaskrá eða hönnunarskrá, greiðist tímagjald:
a) |
Sérfræðingar, á klst. |
2.900
|
b) |
Aðrir starfsmenn, á klst. |
1.600
|
c) |
Fyrir ljósrit af gögnum varðandi einkaleyfi, vörumerki eða hönnun greiðist fyrir hverja síðu í stærðinni A4 Ef beiðni um ljósritun útheimtir verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt staflið a eða b eftir því sem við á. |
50
|
VI. KAFLI
Gjöld fyrir Vörumerkja- og einkaleyfatíðindi o.fl.
16. gr.
a) |
Áskriftargjald á ári |
2.100 |
b) |
Lausasala, hvert eintak |
250 |
c) |
Sérrit 1993-1995, hvert eintak |
2.500 |
d) |
Sérrit, eldri árgangar, hvert eintak |
1.100 |
e) |
Áskrift að ágripi vegna birtra og/eða aðgengilegra einkaleyfisumsókna |
1.200 |
f) |
Ýmsar útskriftir í prentuðu eða fjölrituðu formi, þ.á m. íslensk lög og reglugerðir í erlendri þýðingu eða alþjóðlegir sáttmálar í íslenskri þýðingu |
220 |
VII. KAFLI
Ýmis ákvæði.
17. gr.
Gjöld skv. reglugerð þessari greiðast Einkaleyfastofunni, ef ekki er annað tekið fram.
Gjöld skv. 1.-3. gr. og 8. tl. 4. gr. endurgreiðast ekki þótt einkaleyfisumsókn verði afskrifuð, henni hafnað eða hún dregin til baka, beiðni um endurupptöku eða endurveitingu verði hafnað eða hún dregin til baka eða þótt einkaleyfishafi kjósi að láta einkaleyfi sitt falla úr gildi.
Gjöld skv. 5., 6., 7. og 9. grein skulu greidd við afhendingu umsóknar. Gjöld þessi verða ekki endurgreidd þótt synjað sé um skráningu eða umsókn afturkölluð. Undantekning er þó varðandi c-lið 9. gr.
18. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi með síðari breytingum, 46. gr. laga nr. 47/1968 um vörumerki og 40. gr. laga nr. 48/1993 um hönnunarvernd, og öðlast gildi 1. janúar 1997. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 632/1995 og I. kafli reglugerðar nr. 288/1996.
Iðnaðarráðuneytinu, 17. desember 1996.
F. h. r.
Finnur Ingólfsson.
Halldór J. Kristjánsson.