1. gr.
Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2014, frá 27. júní 2014, um að bæta við IX. viðauka EES-samningsins og taka upp í innlendan rétt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 759/2013, um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB, að því er varðar kröfur um upplýsingar um breytanleg og skiptanleg skuldabréf.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 759/2013, um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB, að því er varðar kröfur um upplýsingar um breytanleg og skiptanleg skuldabréf. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 25. september 2014, bls. 477.
3. gr.
Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 759/2013 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 54. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. október 2014.
F. h. r.
Tómas Brynjólfsson.
Guðbjörg Eva H. Baldursdóttir.