1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 52/2010 frá 30. apríl 2010 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka (Samkeppni) við EES-samninginn, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 267/2010 frá 24. mars 2010 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða á sviði vátrygginga.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 267/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 56/2010, 7. október 2010, bls. 195.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 52/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 37/2010, 15. júlí 2010, bls. 27.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2004, öðlast þegar gildi.
Með þessari reglugerð fellur úr gildi reglugerð nr. 825/2006 um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 358/2003 frá 27. febrúar 2003 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða á sviði vátrygginga.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 29. nóvember 2010.
Árni Páll Árnason.
Kjartan Gunnarsson.