1. gr.
Við 2. gr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Sé reikningsfjárhæð lægri en fjárhæð samkvæmt gjaldskrá skal endurgreiðsla þó miðast við reikningsfjárhæð og hluta sjúkratryggðs skv. 4. eða 5. gr. eftir því sem við á.
2. gr
Í stað orðanna "31. maí 2008" í 7. gr. kemur: 30. september 2008.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 41. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 31. maí 2008.
Heilbrigðisráðuneytinu, 29. maí 2008.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Berglind Ásgeirsdóttir.