I. KAFLI
Breyting á reglugerð nr. 1132/2012, um menntun, réttindi og skyldur lífeindafræðinga
og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.
1. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 4. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Starfsleyfi á grundvelli eldri menntunar.
Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er landlækni heimilt að veita starfsleyfi þeim sem uppfylltu skilyrði fyrir starfsleyfi lífeindafræðinga/meinatækna sem í gildi voru á þeim tíma þegar námi lauk og hafa viðhaldið kunnáttu sinni við fagið frá þeim tíma, enda mæli sjónarmið um öryggi sjúklinga ekki gegn því. Landlækni er heimilt að leita sambærilegrar umsagnar og skv. 4. gr. vegna umsókna skv. þessari grein.
2. gr.
Ákvæði til bráðabirgða fellur brott.
II. KAFLI
Breyting á reglugerð nr. 511/2013, um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða
og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.
3. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 4. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Starfsleyfi á grundvelli eldri menntunar.
Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er landlækni heimilt að veita þeim starfsleyfi sem uppfylltu skilyrði fyrir starfsleyfi sjúkraliða sem í gildi voru á þeim tíma þegar námi lauk og hafa viðhaldið kunnáttu sinni við fagið frá þeim tíma, enda mæli sjónarmið um öryggi sjúklinga ekki gegn því. Landlækni er heimilt að leita sambærilegrar umsagnar og skv. 4. gr. vegna umsókna skv. þessari grein.
4. gr.
Ákvæði til bráðabirgða fellur brott.
III. KAFLI
Breyting á reglugerð nr. 1120/2012, um menntun, réttindi og skyldur þroskaþjálfa
og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.
5. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 4. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Starfsleyfi á grundvelli eldri menntunar.
Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er landlækni einnig heimilt að veita þeim starfsleyfi sem uppfylltu skilyrði fyrir starfsleyfi þroskaþjálfa sem í gildi voru á þeim tíma þegar námi lauk og hafa viðhaldið kunnáttu sinni við fagið frá þeim tíma, enda mæli sjónarmið um öryggi sjúklinga ekki gegn því. Landlækni er heimilt að leita sambærilegrar umsagnar og skv. 4. gr. vegna umsókna skv. þessari grein.
6. gr.
Ákvæði til bráðabirgða falla brott.
IV. KAFLI
Gildistaka.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga nr. 34/2012, um heilbrigðisstarfsmenn, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 19. september 2024.
Willum Þór Þórsson.
Ásthildur Knútsdóttir.