Heilbrigðisráðuneyti

823/2024

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi, nr. 511/2013.

1. gr.

Í stað orðanna "tilgreind lyf sem búið er að taka til" í 7. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: ákveðin lyf samkvæmt verklagsreglum heilbrigðisstofnunar.

 

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012 og öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 10. júlí 2024.

 

Willum Þór Þórsson.

Ásta Valdimarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica