685/2023
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.
1. gr.
Í stað orðanna "V. og VI. kafla" í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: IV. kafla A, V. og VI. kafla.
2. gr.
Í stað "16. gr." í 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 3. mgr. 33. gr.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað "16. gr." í 1. mgr. kemur: 22. og 30. gr.
- Í stað orðanna "aldurstengdrar örorkuuppbótar skv. 21. gr." í 3. mgr. kemur: aldursviðbótar skv. 29. gr.
- Í stað orðanna "aldurstengdrar örorkuuppbótar skv. 21. laga um almannatryggingar og 95% af fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. sömu laga" í 4. mgr. kemur: aldursviðbótar skv. 29. gr. laga um almannatryggingar og 95% af fjárhæð tekjutryggingar skv. 28. gr. sömu laga.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:
- 2. mgr. orðast svo: Full heimilisuppbót til ellilífeyrisþega skal vera 956.784 kr. á ári. Uppbótin skal lækka um 11,9% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 22. gr. laga um almannatryggingar, uns hún fellur niður. Um útreikning heimilisuppbótar vegna búsetu fer skv. 16. gr. laga um almannatryggingar, um áhrif sveigjanlegrar töku ellilífeyris á heimilisuppbót fer skv. 4. mgr. 19. gr. og um frítekjumörk vegna tekna fer samkvæmt 3. og 4. mgr. 22. gr. sömu laga.
- Í stað "756.240 kr." í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 775.152 kr.
5. gr.
Í stað "4. mgr. 18. gr." í 4. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. mgr. 26. gr.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað "389.301 kr." í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 399.034 kr.
- Í stað "309.616 kr." í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 317.356 kr.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. mgr. 9. gr., sbr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 63. gr. og 11. tölul. ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig lög nr. 54/2023, öðlast gildi 1. júlí 2023. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1436/2022, um breytingu á reglugerð um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 29. júní 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.
Reglugerð sem fellur brott: