1. gr.
Í stað fjárhæðarinnar "1.248 kr." í 1. málsl. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 1.281 kr.
2. gr.
Í stað "1. janúar 2020 til og með 31. desember 2020" í 3. málsl. 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2021.
Heilbrigðisráðuneytinu, 26. nóvember 2020.
Svandís Svavarsdóttir.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.