Félagsmálaráðuneyti

1070/2019

Reglugerð um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2019. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna fyrir desember 2019.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

2. gr.

Desemberuppbót.

Foreldri langveiks eða alvarlega fatlaðs barns sem fær greiðslu í desember 2019 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna á rétt á desemberuppbót að fjárhæð 59.748 kr. enda hafi foreldrið fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2019.

Foreldri sem hefur fengið greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2019 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem foreldrið hefur fengið greiðslur á árinu samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.

Desemberuppbót skv. 2. mgr. skal þó aldrei nema lægri fjárhæð en 14.937 kr.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 31. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1072/2018, um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2018.

Félagsmálaráðuneytinu, 28. nóvember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica