1. gr.
Heiti reglugerðarinnar verður: Reglugerð um ráðstöfunarfé og dagpeninga lífeyrisþega.
2. gr.
Hvar sem orðið "vasapeningar", í hvers konar beygingarfalli, kemur fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Ráðstöfunarfé.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:
4. gr.
Í stað "2.827 kr." í 6. gr. kemur: 3.101 kr.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2016. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1218/2014, um breytingu á reglugerð nr. 460/2013, um vasapeninga og dagpeninga vegna dvalar lífeyrisþega á stofnun.
Velferðarráðuneytinu, 21. desember 2015.
Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.