1. gr.
Orlofs- og desemberuppbætur.
Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 8. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur á árinu 2015.
2. gr.
Orlofsuppbót.
Í júlí skal greiða 20% uppbót á fjárhæðir skv. 1. gr. sem reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega síðustu 12 mánuði fyrir greiðslu uppbótarinnar.
3. gr.
Desemberuppbót.
Í desember skal greiða 30% uppbót á fjárhæðir skv. 1. gr. sem reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega á árinu 2015.
4. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1218/2013, um orlofs- og desemberuppbætur til lífeyrisþega árið 2014.
Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014.
Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.