1. gr.
Orlofs- og desemberuppbætur.
Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 8. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur á árinu 2012.
2. gr.
Orlofsuppbót.
Í júlí skal greiða 20% uppbót á fjárhæðir skv. 1. gr. sem reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega síðustu 12 mánuði fyrir greiðslu uppbótarinnar.
3. gr.
Desemberuppbót.
Í desember skal greiða 30% uppbót á fjárhæðir skv. 1. gr. sem reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega á árinu 2012.
4. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2012. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 991/2010, um orlofs- og desemberuppbætur til lífeyrisþega árið 2011, með síðari breytingu.
Velferðarráðuneytinu, 22. desember 2011.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.