1. gr.
Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. kemur nýr málsliður sem orðast svo:
Við ákvörðun hámarksverðs S-merktra lyfja, sbr. 1. mgr. 8. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, í heildsölu, tekur lyfjagreiðslunefnd að jafnaði mið af lægsta heildsöluverði í viðmiðunarlöndunum sem tilgreind eru í 1. mgr. 4. gr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 43. gr. og 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. maí 2010.
Ákvæði til bráðabirgða.
Verðákvarðanir skv. 1. gr. hafa ekki áhrif á verð S-merktra lyfja samkvæmt útboðssamningum heilbrigðisstofnana sem þegar eru í gildi við gildistöku reglugerðar þessarar.
Heilbrigðisráðuneytinu, 30. apríl 2010.
Álfaheiður Ingadóttir.
Vilborg Þ. Hauksdóttir.