Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

1439/2022

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023. - Brottfallin

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:

    frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Vegna fjármagnstekna skv. a-lið 2. mgr. 16. gr.    98.640  
b. Tekjutrygging vegna atvinnutekna    
  skv. ákvæði til bráðabirgða 2.400.000   
c. Ellilífeyrir skv. 1. mgr. 23. gr.    
  i. Almennt   300.000  8.508.773
  ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000   
d. Hálfur ellilífeyrir skv. 2. mgr. 23. gr.    
  i. Almennt 3.900.000   8.004.400
  ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000   
g. Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. 2.575.220  10.338.153 
h. Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. 2.575.220  10.226.953 
i. Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. 2.575.220  10.338.153 
j. Aldurstengd örorkuuppbót (100%)    
  skv. 1. mgr. 21. gr. 2.575.220  10.338.153 
k. Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna    
  skv. 3. mgr. 22. gr.   328.800  
l. Ráðstöfunarfé skv. 8. mgr. 48. gr.    1.705.957

 

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:

    frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
a. Endurhæfingarlífeyrir skv. 3. mgr. 7. gr. 2.575.220  10.338.153 
b. Heimilisuppbót með ellilífeyri skv. 2. mgr. 8. gr.    
  i. Almennt   300.000  8.144.067
  ii. Vegna atvinnutekna 2.400.000   
  iii. Með hálfum ellilífeyri 3.900.000   7.822.084
  iv. Með hálfum ellilífeyri vegna atvinnutekna 2.400.000   
c. Heimilisuppbót með örorkulífeyri skv. 3. mgr. 8. gr.    
  i. Vegna atvinnutekna 2.400.000   
  ii. Vegna lífeyrissjóðstekna   328.800  
d. Sérstök uppbót skv. 2. mgr. 9. gr.:    
  i. Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót        389.301
  ii. Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót        309.616

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:

    efra tekjumark kr.
Frekari uppbætur skv. 11. gr.   3.562.652

 

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.

 

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­trygg­ingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breyt­ingum, öðlast gildi 1. janúar 2023. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 617/2022, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2022.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 20. desember 2022.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica