1. gr.
3. gr. orðast svo:
Upphæð vasapeninga er 41.895 kr. á mánuði. Tekjur skulu hafa áhrif á fjárhæð vasapeninga á þann hátt að 65% af tekjum hlutaðeigandi dragast frá fjárhæð þeirra og falla greiðslur alveg niður við tekjur sem nema 773.446 kr. á ári.
Með tekjum er átt við tekjur eins og þær eru skilgreindar í 16. gr. laga um almannatryggingar og um tekjuútreikning fer samkvæmt sömu grein.
2. gr.
Í stað "741.582 kr." í 4. gr. kemur: 812.774 kr.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009.
Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Ágúst Þór Sigurðsson.