Utanríkisráðuneyti

1056/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2014.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1.9 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1795 frá 24. júní 2024 um breytingu á ákvörðun 2011/235/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum og rekstrar­einingum í ljósi ástandsins í Íran, fylgiskjal 1.9.
  2.9  Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1796 frá 24. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 359/2011 um þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Íran, fylgiskjal 2.9.
  5.2  Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1970 frá 15. júlí 2024 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, fylgiskjal 5.2.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 2. september 2024.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica