Utanríkisráðuneyti

551/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu, nr. 792/2015.

1. gr.

Almenn ákvæði.

2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þvingunar­aðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.

 

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

  1.20 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/882 frá 18. mars 2024 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.20.
  3.11 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/898 frá 18. mars 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 147/2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 3.11.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þving­unaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópu­sambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.

 

3. gr.

Viðurlög.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

 

4. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 22. apríl 2024.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(Sjá PDF-skjal)

Þetta vefsvæði byggir á Eplica