1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
7.34 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/577 frá 12. febrúar 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.34. | |
7.35 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/746 frá 23. febrúar 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.35. | |
8.26 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/576 frá 12. febrúar 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.26. | |
8.27 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/745 frá 23. febrúar 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.27. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 7. mars 2024.
Bjarni Benediktsson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)