1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
3.70 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1094 frá 5. júní 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.70. | |
4.79 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/1089 frá 5. júní 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.79. | |
5.6 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1188 frá 19. júní 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/386/SSUÖ um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol, fylgiskjal 5.6. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 14. júlí 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)