1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
1.5 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2085 frá 27. október 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/573/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn stjórninni á Transnistríusvæðinu í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 1.5. | |
2. | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/891 frá 28. apríl 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 2. | |
2.1 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1047 frá 30. maí 2023 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/891 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 2.1. | |
3. |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/888 frá 28. apríl 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 3. |
|
3.1 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/1045 frá 30. maí 2023 um framkvæmd reglugerðar (ESB) 2023/888 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Lýðveldinu Moldóvu, sbr. fylgiskjal 3.1. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 5. júní 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)