1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
1.18 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/341 frá 28. febrúar 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.18. | |
1.19 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/160 frá 23. janúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.19. | |
2.13 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/340 frá 28. febrúar 2022 um framkvæmd 12. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.13. | |
2.14 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/155 frá 23. janúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.14. | |
3.10 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/154 frá 23. janúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 147/2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 3.10. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 17. apríl 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)