1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
1.14 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1945 frá 10. desember 2018 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.14. | |
1.15 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/170 frá 6. febrúar 2020 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.15. | |
1.16 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/54 frá 22. janúar 2021 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.16. | |
1.17 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/560 frá 6. apríl 2021 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.17. | |
2.11 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2018/1933 frá 10. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.11. | |
2.12 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/559 frá 6. apríl 2021 um framkvæmd 12. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.12. | |
3.8 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2020/169 frá 6. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 147/2003 um þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 3.8. | |
3.9 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/48 frá 22. janúar 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 147/2003 um þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 3.9. |
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
2. gr.
Gildístaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 17. maí 2021.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)