1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:
1.15 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/2130 frá 17. desember 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.15. | |
2.21 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/2129 frá 17. desember 2020 um framkvæmd 1. mgr. 8. gr. reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 2.21. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 4. janúar 2021.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)