1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:
1.12 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/214 frá 17. febrúar 2020 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.12. | |
1.13 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1388 frá 2. október 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.13. | |
1.14 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1650 frá 6. nóvember 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.14. | |
2.19 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/1387 frá 2. október 2020 um framkvæmd 1. mgr. 8. gr. a reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 2.19. | |
2.20 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/1648 frá 6. nóvember 2020 um framkvæmd 1. mgr. 8. gr. a reglugerðar (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 2.20. |
2. málsl. 3. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 4. desember 2020.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)