Prentað þann 7. apríl 2025
1399/2018
Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015, ásamt síðari breytingum.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast í réttri númeraröð við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015, ásamt síðari breytingum:
1.11 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/398 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.11. | |
1.12 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2427 frá 21. desember 2017 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.12. | |
1.13 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/417 frá 16. mars 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.13. | |
2.8 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/395 frá 7. mars 2017 um framkvæmd 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.8. | |
2.9 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/2415 frá 21. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.9. | |
2.10 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/413 frá 16. mars 2018 um framkvæmd 12. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.10. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 6. nóvember 2018.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sturla Sigurjónsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.