Utanríkisráðuneyti

1393/2018

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið, nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætist við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:

  1.14 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/332 frá 5. mars 2018 um framkvæmd ákvörð­unar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, fylgi­skjal 1.14.
  1.15 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/391 frá 12. mars 2018 um breytingu á ákvörðun 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 1.15.
  2.14 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/325 frá 5. mars 2018 um framkvæmd 3. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríku­lýðveldinu, fylgiskjal 2.14.
  2.15 Reglugerð ráðsins (ESB) 2018/387 frá 12. mars 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, fylgiskjal 2.15.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 20. desember 2018.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica