1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast í réttri númeraröð við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum:
1.10 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/350 frá 27. febrúar 2017 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, fylgiskjal 1.10. | |
2.17 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/331 frá 27. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, fylgiskjal 2.17. |
Eftirfarandi töluliðir í sömu málsgrein skulu falla niður: 1.1-1.8 og 2.7-2.14.
Í stað 2.-4. mgr. 2. gr. kemur:
Viðaukar við reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús (fylgiskjal 2) eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg/2006/765/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. október 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar "Skrá yfir varnartengdar vörur". Tilskipunin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.
Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 11. september 2017.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sturla Sigurjónsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)