1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:
3.18 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/445 frá 13. mars 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.18. | |
4.21 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/437 frá 13. mars 2017 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.21. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 24. apríl 2017.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)