1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:
1.6 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/2459 frá 23. desember 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.6. | |
1.7 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/360 frá 11. mars 2016 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.7. | |
1.8 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/564 frá 11. apríl 2016 um breytingu á ákvörðun 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.8. | |
1.9 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1446 frá 31. ágúst 2016 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.9. | |
2.6 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/2454 frá 23. desember 2015 um framkvæmd 1. og 3. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.6. | |
2.7 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/354 frá 11. mars 2016 um framkvæmd 1. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.7. | |
2.8 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/555 frá 11. apríl 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.8. | |
2.9 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/1442 frá 31. ágúst 2016 um framkvæmd 1. og 3. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.9. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 22. febrúar 2017.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)