Utanríkisráðuneyti

91/2016

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran nr. 384/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Íran nr. 384/2014 í réttri númeraröð:

  3.22 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1336 frá 31. júlí 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 3.22.
  3.23 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1337 frá 31. júlí 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 3.23.
  3.24 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1863 frá 18. október 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 3.24.
  3.25 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/2216 frá 30. nóvember 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/413/ SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 3.25.
  3.26 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/35 frá 14. janúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/413/ SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 3.26.
  3.27 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/36 frá 14. janúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/413/ SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 3.27.
  3.28 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/37 frá 14. janúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2010/413/ SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 3.28.
  4.21 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1327 frá 31. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 4.21.
  4.22 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1328 frá 31. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 4.22.
  4.23 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1861 frá 18. október 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 4.23.
  4.24 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 2015/1862 frá 18. október 2015 um fram­kvæmd reglugerðar (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 4.24.
  4.25 Framkvæmdareglugerð ráðsins (ESB) nr. 2015/2204 frá 30. nóvember 2015 um fram­kvæmd reglugerðar (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 4.25.
  4.26 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/31 frá 14. janúar 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 4.26.

Töluliður 3.18 í 2. gr. fellur niður.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 21. janúar 2016.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica