1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Á eftir 11. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, sbr. reglugerð nr. 522/2014, komi tveir nýir töluliðir sem hljóði svo:
12) |
Ákvörðun ráðsins 2014/455/SSUÖ frá 11. júlí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu; |
|
13) |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2014 frá 11. júlí 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
2. gr.
Fylgiskjöl.
Gerðir sem vísað er til í 12. og 13. tölul. eru birtar sem fylgiskjöl 1 og 2 við reglugerð þessa.
3. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 18. júlí 2014.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Einar Gunnarsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)