1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, sbr. reglugerð nr. 287/2014, hljóði svo:
Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. Gerðirnar, ásamt viðaukum, eru birtar sem fylgiskjöl 1-6 við reglugerð þessa:
1) |
Ákvörðun ráðsins 2014/119/SSUÖ frá 5. mars 2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu |
|
2) |
Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 208/2014 frá 5. mars 2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. |
|
3) |
Ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
4) |
Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
5) |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/151/SSUÖ frá 21. mars 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
|
6) |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 284/2014 frá 21. mars 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. |
2. gr.
Fylgiskjöl.
Gerðir sem vísað er til í 1. og 2. tölul. 1. gr. eru birtar sem fylgiskjöl 1 og 2 við reglugerð nr. 281/2014, gerðir skv. 3. og 4. tölul. eru birtar sem fylgiskjöl 1 og 2 við reglugerð nr. 287/2014 og gerðir skv. 5. og 6. tölul. eru birtar sem fylgiskjöl 1 og 2 við reglugerð þessa.
3. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 30. mars 2014.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Einar Gunnarsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)