Reglugerð
um breytingu á reglugerð nr. 158/1997, um álagningu spilliefnagjalds, sbr.
breytingu nr.203/1997 og breytingu nr.316/1997.
1.gr.
Við reglugerðina bætist nýr VI. kafli sem er svohljóðandi:
VI. KAFLI.
Rafhlöður.
13.gr.
Gjaldskyldar rafhlöður og upphæð gjaldsins.
Spilliefnagjald skal lagt á einnota og endurhlaðanlegar rafhlöður hvort sem þær eru fluttar inn stakar eða sem hluti af rafföngum sem innihalda orkugjafa.
Rafhlöður sem innihalda meira en 0,025% kvikasilfurs eða kadmíums flokkast sem spilliefni að notkun lokinni og er um eftirfarandi gerðir að ræða:
Rafhlöðugerð |
Kvikasilfurinnihald (%) |
Kvikasilfuroxíð |
30 |
Loft-sink |
1 |
Silfuroxíð |
0,4 |
Alkalískar hnapparafhlöður* |
0,2 |
Spilliefnagjald á innfluttar rafhlöður skal innheimt í tolli. Við tollafgreiðslu ber innflytjanda að tilgreina í þar til gerðan reit á tollskýrslu, sbr. leiðbeiningar ríkistollstjóraembættisins þar um, hvort varan sé ekki spilliefnagjaldsskyld, sbr. skilgreiningu í 2. og 3. mgr.
Um gjaldtöku og flokkun til gjaldskyldu á rafhlöðum og tækjum eða búnaði sem í eru eða fylgja rafhlöður, gilda ákvæði viðauka V við þessa reglugerð.
2.gr.
VI. KAFLI verður VII. KAFLI.
3.gr.
13. gr. verður 14. gr. og 14. gr. verður 15. gr.
4.gr.
Við reglugerðina bætist viðauki V sem er svohljóðandi:
VIÐAUKI V
RAFHLÖÐUR SEM GETA ORÐIÐ AÐ SPILLIEFNUM.
Spilliefnagjald skal reikna sem tiltekna fjárhæð á hvert kílígramm (eða hluta úr kílógrammi) rafhlaðna sem flokkast undir eftirtalin tollskrárnúmer:
ÚR 85. KAFLA TOLLSKRÁRINNAR
8504 |
|
Rafmagnsspennar, stöðustraumbreytar (t.d. afriðlar) og spankefli: |
Kr./kg. |
|
|
- Aðrir spennar: |
|
|
8504.3100 |
- - 1 kVA eða minni |
26,00 |
|
8504.3200 |
- - Stærri en 1 kVA til og með 16 kVA |
26,00 |
|
8504.3300 |
- - Stærri en 16 kVA til og með 500 kVA |
26,00 |
8506 |
|
Frumrafhlöð og frumrafhlöður: |
|
|
8506.3000 |
- Kvikasilfuroxíð |
186,00 |
|
8506.4000 |
- Silfuroxíð |
186,00 |
|
8506.6000 |
- Loft-sink |
186,00 |
|
8506.8001 |
Alkalískar hnapparafhlöður |
186,00 |
8507 |
|
Rafgeymar, þar sem taldar skiljur til þeirra, einnig rétthyrndir (þar með taldar ferningslaga): |
|
|
|
- Nikkelkadmíum: |
|
|
8507.3001 |
- - Rafgeymar, sem eru 1,2 V einingar í loftþéttum hylkjum, einnig rafgeymar, samsettir úr tveimur eða fleiri slíkum. einingum. |
186,00 |
|
8507.3009 |
- - Aðrir |
186,00 |
8543 |
|
Rafmagnsvélar og -tækjabúnaður, til sérstakra nota, ót.a. í þessum kafla: |
|
|
8543.4000 |
- Orkugjafar fyrir rafmagnsgirðingar |
186,00 |
8548 |
|
Frumrafhlöð, frumrafhlöður og rafgeymar, sem úrgangur og rusl; notuð frumrafhlöð, notaðar frumrafhlöður og notaðir rafgeymar; rafmagnshlutar til vélbúnaðar eða tækjabúnaðar, ót.a. í þessum kafla: |
|
|
8548.1000 |
- Frumrafhlöð, frumrafhlöður og rafgeymar, sem úrgangur og rusl; notuð frumrafhlöð, notaðar frumrafhlöður og notaðir rafgeymar |
186,00 |
5.gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 56/1996 um spilliefnagjald og öðlast gildi 1. ágúst 1997.
Umhverfisráðuneytinu, 11. júlí 1997.
Guðmundur Bjarnason.
Ingimar Sigurðsson.
Nikkelkadmíum rafhlöður flokkast undir spilliefni.