1. gr.
Í stað orðsins "Umhverfisstofnun" í 5. tl. 3. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfis- og orkustofnun.
2. gr.
Í stað orðsins "umhverfismörk" í 14. tl. 3. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur (í viðeigandi beygingarfalli): viðmiðunarmörk.
3. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 3. gr. reglugerðarinnar:
Skilgreining á "Þynningarsvæði" fellur brott.
4. gr.
3. og 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar falla brott.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 10. febrúar 2025.
Jóhann Páll Jóhannsson
umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra.
Stefán Guðmundsson.