1. gr.
7. tl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Frá 1. september til 15. mars: Helsingi, nema í Austur- og Vestur-Skaftafellssýslum, en þar er friðun helsingja aflétt frá 10. september til 15. mars.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. 17. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 6. september 2021.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.