1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka reglugerðarinnar:
|
(2) |
X |
|
Ökutæki, gerðarviðurkennd fyrir 1. janúar 2024, og varahlutir í þessi ökutæki |
X |
|
Ökutæki, gerðarviðurkennd fyrir 1. október 2022, og varahlutir í þessi ökutæki |
X |
||||||||||||
|
(2) Gildir um ökutæki, gerðarviðurkennd frá 1. október 2022, og varahluti í þessi ökutæki |
X |
|
Ökutæki, gerðarviðurkennd fyrir 1. janúar 2024, og varahlutir í þessi ökutæki |
X(4) |
2. gr.
Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/363 frá 17. desember 2019 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/53/EB um úr sér gengin ökutæki að því er varðar tilteknar undanþágur fyrir blý og blýsambönd í íhlutum, sem vísað er til í tölul. 32e í XX. kafla viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2021, þann 23. apríl 2021.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. og 11. tölul. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. maí 2021.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.