1. gr.
Í stað viðauka við reglugerðina kemur nýr viðauki, sem birtur er með reglugerð þessari.
2. gr.
Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2096 frá 15. nóvember 2017 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/53/EB um úr sér gengin ökutæki sem vísað er til í tölul. 32e í XX. kafla viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2018, þann 23. mars 2018.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í c. lið 1. tölul. og 11. tölul. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013, tekur þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 1. júní 2018.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)