1. gr.
Töluliður 13 í fylgiskjali 1 orðist svo:
13. | a. | Meðhöndlun og förgun spilliefna, þ.m.t. námuúrgangsstaðir, þar sem heimild er til meðhöndlunar á meira en 2.500 tonnum af spilliefnum á ári | 1 |
b. | Meðhöndlun og förgun spilliefna, þ.m.t. námuúrgangsstaðir, þar sem heimild er til meðhöndlunar á 500-2.500 tonnum af spilliefnum á ári eða til að endurmynda og nýta úrgangsolíu á staðnum að magni 10.000 tonn á ári eða meira | 2 | |
c. | Meðhöndlun og förgun spilliefna, þ.m.t. námuúrgangsstaðir, þar sem heimild er til meðhöndlunar á 50-499 tonnum af spilliefnum á ári eða til að endurmynda og nýta úrgangsolíu á staðnum í minna magni en 10.000 tonn á ári | 3 | |
d. | Meðhöndlun og förgun spilliefna, þ.m.t. námuúrgangsstaðir, þar sem heimild er til meðhöndlunar á minna en 50 tonnum af spilliefnum á ári eða þar sem einvörðungu eru meðhöndlaðir rafgeymar | 4 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 26. ágúst 2015.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.