814/2014
Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 1101/2004 um markaðssetningu sæfiefna. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Í töflu í A-hluta V. viðauka, "Virk efni sem heimilt er að nota í sæfiefni", bætast við efni, sbr. töflu í I. viðauka við þessa reglugerð.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:
-
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2013/7/ESB frá 21. febrúar 2013 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu, alkýl(C12-16)-dímetýlbensýlammóníumklóríði við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2013, þann 8. október 2013.
-
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2013/27/ESB frá 17. maí 2013 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu klórfenapýr við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 224/2013, þann 13. desember 2013.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 12. september 2014.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)