1. gr.
Við reglugerðina bætist við ný grein 7. gr. a, sem orðast svo:
Þrátt fyrir 1. lið 59. færslu í XVII. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1907/2006, sbr. 8. gr., er málarameisturum heimilt að nota málningaruppleysa sem innihalda díklórmetan að uppfylltum skilyrðum sem fram koma í þessari grein. Jafnframt er heimilt að slíkir málningaruppleysar séu settir á markað til sölu til málarameistara að uppfylltum skilyrðum sem fram koma í þessari grein.
Málarameistari, sem óskar eftir að nota málningaruppleysa sem innihalda díklórmetan, skal hafa hlotið sérstaklega þjálfun til að nota málningaruppleysa sem innihalda díklórmetan. Slík þjálfun skal að lágmarki ná yfir vitneskju um heilbrigðisáhættur og mat og stjórn á þeim, þ.m.t. upplýsingar um fyrirliggjandi staðgönguefni eða ferli sem við notkunarskilyrðin eru hættuminni fyrir heilbrigði og öryggi starfsmanna, notkun á nægjanlegri loftræstingu og notkun á viðeigandi persónuhlífum. Málarameistari skal skila staðfestingu á að hafa lokið þjálfun til Umhverfisstofnunar.
Umhverfisstofnun gefur út vottorð fyrir málarameistara sem hlotið hafa þjálfun skv. 2. mgr.
Fyrirtæki, sem óskar eftir að markaðssetja málningaruppleysa sem innihalda díklórmetan, skal afla sér leyfis frá Umhverfisstofnun til að markaðssetja slíka málningaruppleysa.
Umhverfisstofnun gefur út leyfi fyrir fyrirtæki sem markaðssetja málningaruppleysa sem innihalda díklórmetan.
Fyrirtæki, sem hafa leyfi skv. 5. mgr., er einungis heimilt að afhenda málningaruppleysa sem innihalda díklórmetan til aðila sem hafa vottorð skv. 3. mgr. Þá er slíkum fyrirtækjum óheimilt að stilla málningaruppleysum sem innihalda díklórmetan upp í verslunum sínum.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 4. gr. laga nr. 45/2008, um efni og efnablöndur.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 1. mars 2013.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.