1. gr.
Í stað 7. liðar í töflu í A. hluta V. viðauka, "Virk efni sem heimilt er að nota í sæfiefni", komi nýr 7. liður, sbr. töflu í I. viðauka við þessa reglugerð.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, og lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2010/74/ESB frá 9. nóvember 2010 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að rýmka færsluna fyrir virka efnið koldíoxíð í I. viðauka við tilskipunina þannig að færslan nái yfir sæfiefnaflokk 18, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 73/2011.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 29. september 2011.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)