1. gr.
3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Aðferðir við sýnatöku og aðra meðhöndlun sýna fyrir mælingar á varnarefnaleifum í og á ávöxtum, grænmeti og dýraafurðum skulu vera í samræmi við B-hluta í viðauka við reglugerð þessa. Greining skal framkvæmd með þeirri aðferð sem þar kemur fram eða annarri aðferð sem telst sambærileg.
2. gr.
1. mgr. A-hluta viðauka reglugerðarinnar orðast svo:
Sýni til opinbers eftirlits með hámarki varnarefnaleifa skulu tekin samkvæmt aðferðum sem lýst er í viðauka þessum. Vöru-/safn- og rannsóknarsýni tekin á þann hátt skulu talin dæmigerð fyrir framleiðslueininguna. Opinber eftirlitsaðili skal taka sýnin.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Við gildistöku reglugerðar þessarar falla eftirfarandi reglugerðir úr gildi:
5. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. nóvember 2010.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.