1. gr.
5. tl. 2. mgr. 8. gr. orðast svo:
Heimilt er að veiða rjúpu frá og með 27. október til og með 6. desember, frá og með föstudögum og til og með sunnudögum á því tímabili, sbr. þó 9. gr.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 15. september 2009.
Svandís Svavarsdóttir.
Magnús Jóhannesson.