1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:
83) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/464 frá 3. mars 2023 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hann að tækniframförum, sem vísað er til í tölulið 12zza, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 315/2023, þann 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 300-313. | |
84) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2482 frá 13. nóvember 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efnið bis(2-etýlhexýl)þalat (DEHP) í lækningatæki, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 14/2024, þann 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 21. mars 2024, bls. 252-255. | |
85) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/923 frá 3. maí 2023 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar blý og efnasambönd þess í pólývínýlklóríði, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2024, þann 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 238-243. | |
86) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1464 frá 14. júlí 2023 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar formaldehýð og formaldehýðlosandi efni, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2024, þann 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 247-255. |
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 28. maí 2024.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Guðmundsson.