1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast einn nýr töluliður, svohljóðandi:
82) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1132 frá 8. júní 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efni sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun sem sæta takmörkunum, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 234/2023, þann 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79 frá 2. nóvember 2023, bls. 713-717. |
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1132 frá 8. júní 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efni sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun sem sæta takmörkunum.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 23. nóvember 2023.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Guðmundsson.