Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1067/2018

Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/613 frá 20. apríl 2018 um að samþykkja PHMB (1415; 4.7) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2 og 4, sem vísað er til í tl. 12zzzzzj, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2018, þann 21. september 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 27. september 2018, bls. 74-77.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/614 frá 20. apríl 2018 um að samþykkja asoxýstróbín sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 7, 9 og 10, sem vísað er til í tl. 12zzzzzk, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2018, þann 21. september 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 27. september 2018, bls. 78-81.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/613 frá 20. apríl 2018 um að samþykkja PHMB (1415; 4.7) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2 og 4.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/614 frá 20. apríl 2018 um að samþykkja asoxýstróbín sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 7, 9 og 10.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 21. nóvember 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.