Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

912/2018

Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fimm nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1174 frá 15. júlí 2016 um skilmála og skilyrði leyfis fyrir sæfivöru, sem inniheldur dífenakúm, sem Spánn lagði fram í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12nny, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 234/2016, þann 2. desember 2016. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 3. ágúst 2017, bls. 44-46.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1175 frá 15. júlí 2016 um skilmála og skilyrði leyfis fyrir sæfivöru, sem inniheldur spínósað, sem Bretland lagði fram í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12nnz, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 234/2016, þann 2. desember 2016. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 3. ágúst 2017, bls. 47-48.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1943 frá 4. nóvember 2016 um notkun á paraffínolíu til að húða egg til að stýra stofnstærð varpfugla skv. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12zzzzf, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 29/2017, þann 3. febrúar 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 26. júlí 2018, bls. 1-2.
  4. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1950 frá 4. nóvember 2016 um að samþykkja ekki tiltekin sæfandi, virk efni samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12zzzzg, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 29/2017, þann 3. febrúar 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 26. júlí 2018, bls. 3-7.
  5. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2334 frá 14. desember 2017 um frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir kreósóti til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8, sem vísað er til í tl. 12zzzzzh, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2018, þann 23. mars 2018. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 26. júlí 2018, bls. 9-10.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1174 frá 15. júlí 2016 um skilmála og skilyrði leyfis fyrir sæfivöru, sem inniheldur dífenakúm, sem Spánn lagði fram í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1175 frá 15. júlí 2016 um skilmála og skilyrði leyfis fyrir sæfivöru, sem inniheldur spínósað, sem Bretland lagði fram í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1943 frá 4. nóvember 2016 um notkun á paraffínolíu til að húða egg til að stýra stofnstærð varpfugla skv. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.
  4. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1950 frá 4. nóvember 2016 um að samþykkja ekki tiltekin sæfandi, virk efni samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.
  5. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2334 frá 14. desember 2017 um frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir kreósóti til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. september 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.