Prentað þann 26. mars 2025
266/2018
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 344/2013 um frjálsa þátttöku fyrirtækja og stofnana í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS).
1. gr.
Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1505 frá 28. ágúst 2017 um breytingu á I., II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1221/2009 um frjálsa aðild fyrirtækja/stofnana að umhverfisstjórnunarkerfi Bandalagsins (EMAS), sem vísað er til í tl. 1ea, XX. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245/2017, þann 15. desember 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 1. febrúar 2018, bls. 533-552.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1505 frá 28. ágúst 2017 um breytingu á I., II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1221/2009 um frjálsa aðild fyrirtækja/stofnana að umhverfisstjórnunarkerfi Bandalagsins (EMAS), með stoð í 5. tl. 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. tl. 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. febrúar 2018.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.